VELKOMIN Í FRELSISKIRKJUNA!
SARA PÁLSDÓTTIR & Einar Gautur steingrímsson

Frelsiskirkjan er kristið trúarsamfélag sem var stofnað af Söru Pálsdóttur árið 2025 eftir að Guð opinberaði fyrir henni köllun hennar um að stofna lækningakirkju sem ætti að heita Frelsiskirkjan. Hlutverk kirkjunnar er að boða fagnaðarerindið um Jesú Krist, biðja fyrir sjúkum og hjálpa fólki að þroskast og vaxa á göngu sinni með Heilögum anda.
Við trúum því að Jesús Kristur sé hinn sami í gær, í dag og að eilífu – að hann frelsi, lækni og umbreyti lífi fólks enn í dag.
Þrjú meginmarkmið Frelsiskirkjunnar eru:
-
Að leiða fólk til hjálpræðis í Jesú Kristi.
-
Að boða og miðla guðlegri lækningu.
-
Að hjálpa fólki að byggja upp lifandi og persónulegt samband við Jesú Krist.
Með prédikunum, biblíufræðslu og hugleiðslubænum viljum við miðla orði Guðs og hjálpa fólki að upplifa frelsi, frið og líf í fullri gnægð.
Frelsiskirkjan er með lestur og hugleiðslubæn á netinu öll fimmtudagskvöld kl. 21 og eru allir hjartanlega velkomnir með! Allar upplýsingar eru hér að neðan.
„Ég er kominn til þess að þeir hafi líf, líf í fullri gnægð.“ – Jóhannes 10:10
Horfðu á nýjasta vefþátt frelsis-kirkjunnar

Ertu tilbúin/n að hætta að standa í stað og fara dýpra með Guði? 🔥✝️
🎧 Vefþættir Frelsiskirkjunnar eru fyrir þig sem vilt styrkjast í trúnni, skilja Orð Guðs betur og læra að ganga með Jesú í daglegu lífi.
Í þáttunum færðu biblíulega kennslu, hvatningu, trú og von — með það að markmiði að leiða þig nær Guði og inn í frelsi, lækningu og umbreytingu.

vertu hermaður frelsiskirkjunni 💛
Saman getum við breytt lífum
Með þínu framlagi getum við boðað fagnaðarerindið til enn fleiri og séð líf umbreytast.
,,Farið því og gerið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður og sonar og heilags anda og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið yður."
- Matteusarguðspjall 28
fréttabréf Frelsiskirkjunnar
🤍 Skráðu þig á póstlista Frelsiskirkjunnar og fáðu mánaðarlegt fréttabréf með hvatningu, biblíulegri kennslu, nýju efni og fréttum úr starfinu.
✨ Leyfðu Orði Guðs að fylgja þér inn í nýjan mánuð.
.png)











